
Bríet
Rétt fyrir páska leggur BRÍET land undir fót ásamt hljómborðsleikaranum Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni og trommaranum Bergi Einari Dagbjartssyni.
Ferðalagið hefst í Borgarnesi og endar á Vagninum, Flateyri, á föstudeginum langa með miðnæturtónleikum – páskahefð sem BRÍET hefur skapað þar í gegnum árin.
Á tónleikunum má búast við einstaka tónlistarupplifun þar sem hún flytur vinsælustu lög sín ásamt nýju efni. Það má búast við mikilli nánd, stemningu og sterkri sviðsframkomu.