Dalía
Mætumst á miðri leið

Mætumst á miðri leið

Þetta unga og hæfileikaríka fólk, m.a. Alvilda Eyvör, dóttir Elmars Gilbertssonar mun halda næstu tónleika í Dalíu. Nánari upplýsingar verða aðgengilegar hér alveg á næstunni.

Húsið opið frá 18:00.
Tónleikar hefjast kl. 20:00
Aðgangseyrir kr. 2.000 á mann greiðist við innganginn
Styrkt af DalaAuði

Alvilda Eyvör Elmarsdóttir - sópran

Alvilda Eyvör Elmarsdóttir (2004) er lýrísk sópransöngkona frá Reykjavík. Tónlistarmenntun hennar hófst með 10 ára klarinettnámi við ýmsa tónlistarskóla. 16 ára byrjaði Alvilda að læra klassískan söng hjá Þórunni Guðmundsdóttur við Menntaskóla í tónlist og útskrifaðist þaðan árið 2024 með viðurkenningu fyrir hæstu einkunn á framhaldsprófi. Alvilda hefur komið fram sem sólisti með ýmsum kórum, þar á meðal Kór Hallgrímskirkju og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð og árið 2023 söng hún sem sólisti Miðnæturmessu Hallgrímskirkju á aðfangadagskvöld. Með Kammerkórnum Aurora söng Alvilda 98 sýningar af söngleiknum 9líf í Borgarleikhúsinu. Nú stundar hún nám við Sibeliusar-akademíuna í Helsinki og mun útskrifast þaðan með bakkalárgráðu í klassískum söng vorið 2027 og loks með meistaragráðu frá sama skóla veturinn 2029.

Erlendur Snær Erlendsson - píanó

Erlendur Snær Erlendsson (2004) hefur stundað píanónám frá 8 ára aldri. Auk þess leggur hann stund á tónsmíðar og kláraði eitt ár í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands en einbeitir sér nú að píanóleik. Hann leggur mikla áherslu á tjáningu og samvinnu með meðleikurum, þá sér í lagi söngvurum. Erlendur mun útskrifast með bakkalárgráðu frá LHÍ árið 2028.

Matthildur Traustadóttir - fiðla

Matthildur Traustadóttir (2004), lofuð fyrir að búa yfir óvenjulegum þroska og ástríðufullri tjáningu í fiðluleik, hóf fiðlunám sjö ára. Hún fæddist á Ítalíu en ólst upp á Spáni þar sem hún hóf tónlistarnám. Árið 2020 flutti Matthildur til Íslands og byrjaði fiðlunám hjá Guðnýju Guðmundsdóttur. Matthildur lauk burtfaraprófi frá MÍT sem dúx en hún útskrifaðist einnig af náttúrufræðibraut frá Kvennaskólanum í Reykjavík. Matthildur hefur hlotið ýmis verðlaun fyrir fiðluleik sinn í Evrópu og Bandaríkjunum. Til að mynda Fenix International Music Competition, Artist Presentation Society, New Albany, Tuesday Musical, Enkor og Danenburg Honors, sem leiddi til heiðurstónleika í Listasafni Cleveland. Hún sigraði jafnframt einleikarakeppni MÍT haustið 2021 og Unga Einleikara 2026, en þá fékk hún tækifæri til þess að spila einleikskonsert með Sinfóníuhljómsveit Íslands í vor. Matthildur flutti sinn fyrsta einleik 14 ára með sinfóníuhljómsveit Conservatorio Profesional de Música de Tenerife. Hún hefur tekið þátt í tónlistarhátíðum á borð við Music Academy of the West, Heifetz Institute of Music og Meadowmount School of Music. Hún stundar nú nám við tónlistarháskólann Oberlin College and Conservatory undir leiðsögn Sigurbjörns Bernharðssonar

Jakob Arnar Baldurson - píanó

Jakob Arnar Baldursson (f. 2002) er píanóleikari frá Reykjavík. Hann hóf fyrst nám í píanóleik um sex ára aldur og stundaði það í eitt ár, en skipti síðan yfir á harmónikku í tvö ár áður en hann hætti tónlistarnámi um níu ára aldur. Það var ekki fyrr en árið 2018, þegar hann var sextán ára, að hann hóf aftur að spila og hefur haldið því áfram síðan. Hann byrjaði að læra sjálfur heima hjá sér og gerði það í um það bil eitt ár áður en hann fékk kennara í Japan árið 2019, þar sem hann var í skiptinámi. Í ágúst 2020 varð hann nemandi við Menntaskóla í tónlist og útskrifaðist þaðan árið 2024. Síðan þá hefur hann stundað nám við istaháskóla Íslands undir handleiðslu Peter Mate og stefnir á útskrift þaðan í maí 2027. Jakob hefur komið fram sem píanóleikari á ýmsum tónlistarhátíðum, meðal annars á Amalfi Piano Festival árið 2022 og BIP Festival árið 2025 í Rovigo á Ítalíu. Hann hélt útskriftartónleika sína í Norðurljósasal Hörpu árið 2024. Með náminu á Íslandi hefur Jakob verið að taka tíma hjá erlendum kennurum, meðal annars Robert Durso, Edna Golandsky og Ian Jones. Samhliða klassísku píanónámi stundar hann djassnám hjá Eyþóri Gunnarssyni og Davíð Þór Jónssyni.

Myndir